Monday, March 26, 2012

Ný síða fyrir bílaleigu í loftið - camping cars

Camping cars er kannski ögn úr takti við það sem gengur og gerist hér á síðunni. En ég þekki aðeins til þeirra sem eiga í hlut og finnst hugmyndin þar að auki þrælsniðug, þannig að ég svífst einskis og plögga smá ;)

Þannig er að ný vefsíða fór í loftið fyrir stuttu. Þetta er bílaleiga með aðeins öðru sniði en gengur og gerist hér heima. Þjónustan er fyrst og fremst stíluð inná útlenda ferðamenn en mig grunar að mörgum íslendingum gæti hugnast þetta - ég er allavega í þeim hópi.

Camping Cars leigja fjórhjóladrifna (4x4) jeppa sem er auðvitað besta mál en ekki það sem ég tók eftir. Hver bíll er hins vegar búinn tjaldi sem situr ofan á bílnum og þegar fólk ætlar að leggja sig yfir nóttina, þá er bara að leggja bílnum á góðum stað, leggja stiga að hliðinni á bílnum og reisa tjaldið!

Allur viðlegubúnaður er einnig innifalinn og má með sanni segja að þarna sé bara útilegupakkinn klár, allt á einum stað!


No comments:

Post a Comment